Psalms 21

1Til söngstjórans. Davíðssálmur. 2Drottinn, yfir veldi þínu fagnar konungurinn, hve mjög kætist hann yfir hjálp þinni! 3Þú hefir gefið honum það er hjarta hans þráði, um það sem varir hans báðu, neitaðir þú honum eigi. [Sela] 4Því að þú kemur í móti honum með hamingjublessunum, setur gullna kórónu á höfuð honum. 5Um líf bað hann þig, það veittir þú honum, fjöld lífdaga um aldur og ævi. 6Mikil er sæmd hans fyrir þína hjálp, vegsemd og heiður veittir þú honum. 7Já, þú hefir veitt honum blessun að eilífu, þú gleður hann með fögnuði fyrir augliti þínu. 8Því að konungurinn treystir Drottni, og vegna elsku Hins hæsta bifast hann eigi. 9Hönd þín nær til allra óvina þinna, hægri hönd þín nær til allra hatursmanna þinna. 10Þú gjörir þá sem glóandi ofn, er þú lítur á þá. Drottinn tortímir þeim í reiði sinni, og eldurinn eyðir þeim. 11Ávöxtu þeirra afmáir þú af jörðunni og afkvæmi þeirra úr mannheimi, 12því að þeir hafa stofnað ill ráð í gegn þér, búið fánýtar vélar. 13Því að þú rekur þá á flótta, miðar á andlit þeirra með boga þínum. [ (Psalms 21:14) Hef þig, Drottinn, í veldi þínu! Vér viljum syngja og kveða um máttarverk þín! ]
Copyright information for Icelandic